Undirvinnsluaðilar og vinnslustaðir
Viðauki C við vinnslusamning eSigna í 15. gr. skilmálanna. Útgáfa frá 23. október 2026.
Skrá skal alla undirvinnsluaðila sem fá aðgang að persónuupplýsingum vegna þjónustunnar, svo sem við hýsingu, afritun, tilkynningasendingar og tæknilega þjónustu. Tilgreina skal lönd þar sem gögn eru unnin eða varðveitt og lönd þaðan sem aðgangur er veittur. Upplýsingar um frekari undirvinnsluaðila skulu einnig liggja fyrir. Aðilar sem starfa sem sjálfstæðir ábyrgðaraðilar skulu auðkenndir sérstaklega ásamt hlutverki sínu og heimild fyrir miðlun; þeir teljast ekki undirvinnsluaðilar eingöngu vegna tengsla við þjónustuna.
Fyrir hvern undirvinnsluaðila skal fylla út eftirfarandi upplýsingar og endurtaka skráninguna eftir þörfum. Ef enginn undirvinnsluaðili er notaður skal það staðfest sérstaklega. Upplýsingar um eigin vinnslustaði [e]core skulu ávallt liggja fyrir.
Vinnslustaðir hjá [e]core
Ísland. Starfsfólk og verktakar [e]core fá ekki aðgang frá öðrum löndum.
DigitalOcean
- Undirvinnsluaðili
- DigitalOcean, LLC, Bandaríkjunum; privacy@digitalocean.com
- Verkefni og gögn
- Hýsing Kubernetes-klasans (cluster) sem keyrir allar þjónustur eSigna: vef, forritaskil (API) og undirritunarþjónustu, og hýsing gagnagrunns eSigna (DigitalOcean Managed PostgreSQL). Allar upplýsingar sem eSigna vinnur.
- Vinnslulönd
- Þýskaland (Frankfurt, fra1).
- Heimild vegna flutnings utan EES
- Gögn eru unnin innan EES. Vegna mögulegs aðgangs frá Bandaríkjunum: vottun DigitalOcean samkvæmt EU-US Data Privacy Framework, og staðlaðir samningsskilmálar samkvæmt framkvæmdarákvörðun (ESB) 2021/914 til vara (4. gr. vinnslusamnings DigitalOcean).
- Frekari undirvinnsluaðilar
- Birtur listi DigitalOcean: https://www.digitalocean.com/trust/subprocessors
Amazon Web Services
- Undirvinnsluaðili
- Amazon Web Services EMEA SARL, 38 Avenue John F. Kennedy, L-1855 Lúxemborg
- Verkefni og gögn
- Geymsla upphlaðinna og undirritaðra skjala (Amazon S3), geymsla lykla (AWS Secrets Manager) og innskráning forritaskilabiðlara (API clients) í Amazon Cognito. Skjöl og efni þeirra.
- Vinnslulönd
- Írland (eu-west-1).
- Heimild vegna flutnings utan EES
- Gögn eru unnin innan EES. Vegna mögulegs aðgangs frá Bandaríkjunum: staðlaðir samningsskilmálar framkvæmdastjórnarinnar frá júní 2021, sem eru hluti af þjónustuskilmálum AWS.
- Frekari undirvinnsluaðilar
- Birtur listi AWS: https://aws.amazon.com/compliance/sub-processors/
Microsoft
- Undirvinnsluaðili
- Microsoft Ireland Operations Ltd., One Microsoft Place, South County Business Park, Leopardstown, Dublin 18, D18 P521, Írlandi (Microsoft 365)
- Verkefni og gögn
- Sending tölvupósts frá noreply@esigna.is: boð um undirritun, staðfestingar og tilkynningar um höfnun. Nafn og netfang viðtakanda, nafn sendanda (heiti aðgangs), heiti skjals og ástæða höfnunar; hvorki viðhengi, kennitölur né símanúmer. Afrit sendra pósta eru ekki vistuð.
- Vinnslulönd
- Evrópusambandið (gagnasvæði Microsoft 365-leigjanda (tenant) [e]core).
- Heimild vegna flutnings utan EES
- Gögn eru vistuð innan ESB. Vegna mögulegs aðgangs utan EES: staðlaðir samningsskilmálar framkvæmdastjórnarinnar í vinnslusamningi Microsoft (Data Protection Addendum).
- Frekari undirvinnsluaðilar
- Birtur í Microsoft Service Trust Portal (servicetrust.microsoft.com).
Grafana Labs
- Undirvinnsluaðili
- Raintank Inc. dba Grafana Labs, 165 Broadway, 23rd Floor, New York, NY 10006, Bandaríkjunum; privacy@grafana.com
- Verkefni og gögn
- Rekstrarvöktun (monitoring): annálar (logs), ferlar (traces) og mælingar (metrics). Tæknilegar skrár með auðkennum og slóðum (URLs); fyrirspurnarstrengir (query strings) eru faldir. Í sjö daga sýni (16.–23. október 2026) fundust engin netföng, engar IP-tölur notenda og aðeins kennitölur félaga.
- Vinnslulönd
- Bretland (London, eu-west-2).
- Heimild vegna flutnings utan EES
- Bretland hefur jafngildisákvörðun samkvæmt 45. gr. persónuverndarreglugerðarinnar. Vegna mögulegs aðgangs frá Bandaríkjunum: þátttaka Grafana Labs í EU-US Data Privacy Framework, og staðlaðir samningsskilmálar í vinnslusamningi Grafana Labs.
- Frekari undirvinnsluaðilar
- Birtur listi Grafana Labs: https://grafana.com/legal/list-of-subprocessors/
Auðkenni
- Undirvinnsluaðili
- Auðkenni, kt. 521000-2790, Katrínartúni 4, 105 Reykjavík. Hlutverk: sjálfstæður ábyrgðaraðili sem fullgildur traustþjónustuveitandi, en ekki undirvinnsluaðili
- Verkefni og gögn
- Auðkenning undirritenda og notenda, myndun rafrænnar undirskriftar og athugun á afturköllun vottorða. Kennitala og símanúmer undirritanda, tætigildi (hash) skjals og texti sem birtist í appinu: heiti skjalsins þegar undirritað er um forritaskil (API), en fastur texti í vefnum. Skjalið sjálft er ekki sent. Heimild fyrir miðlun: fyrirmæli viðskiptavinar um undirritun með fullgildum rafrænum skilríkjum, sem undirritandi notar samkvæmt eigin samningi við Auðkenni.
- Vinnslulönd
- Ísland.
- Heimild vegna flutnings utan EES
- Á ekki við.
- Frekari undirvinnsluaðilar
- Á ekki við, þar sem Auðkenni er sjálfstæður ábyrgðaraðili.
SK ID Solutions AS
- Undirvinnsluaðili
- SK ID Solutions AS (skráningarnúmer 10747013), Pärnu mnt 141, 11314 Tallinn, Eistlandi
- Verkefni og gögn
- Fullgildir tímastimplar á undirskriftir. Fær aðeins tætigildi (hash) undirskriftarinnar, sem ekki verður rakið til einstaklings; telst því ekki vinnsla persónuupplýsinga og er tilgreint hér til upplýsingar.
- Vinnslulönd
- Eistland.
- Heimild vegna flutnings utan EES
- Á ekki við.
- Frekari undirvinnsluaðilar
- Á ekki við.
Spurningar um undirvinnsluaðila? Sendu okkur línu á esigna@esigna.is.
Vinnslusamningur, 15.7 gr.