Beint í efni

Rafrænar undirskriftir beint úr þínu kerfi

Kerfið þitt sendir skjalið með Integration API, undirritandinn staðfestir með rafrænum skilríkjum í símanum og þú færð skjalið undirritað til baka.

Opnar tölvupóst til esigna@esigna.is

Sama verð og í vefnum: 300 kr. á undirskrift, sem lækkar í 180 kr. eftir því sem þú notar meira
Fyrstu 3 undirskriftir fríar

FULLGILD RAFRÆN UNDIRSKRIFTJón JónssonKt. 010190-238924.07.2026 @ 14:32 GMTÁstæða: Undirritun123

200 OK "signedFileB64": "JVBERi0xLjcK…"

  1. signer.kennitala Hver á að skrifa undir. Nafnið kemur úr rafrænum skilríkjum hans.

  2. signer.reason Ástæðan sem þú sendir, sjálfgefið „Undirritun“.

  3. signatureImage.positioning: "Auto" esigna setur stimpilinn á fyrsta lausa staðinn á síðunni.

Svona virkar Integration API

Ein undirritun í þremur skrefum: kerfið þitt sendir skjalið, spyr um stöðuna og fær skjalið undirritað þegar undirritandinn hefur staðfest í símanum.

POST /api/v1/signing{  "file": { "name": "samningur.pdf" },  "signer": {    "kennitala": "0101902389",    "signingMethod": "AudkenniApp",    "reason": "Undirritun"  },  "signatureImage": {    "positioning": "Auto"  }}200 "pollingId": "b2c3d4e5…"GET /api/v1/signing/b2c3d4e5…400 "errorCode": "AuthorizationPending"GET /api/v1/signing/b2c3d4e5…400 "errorCode": "AuthorizationPending",    "verificationCode": "1234"GET /api/v1/signing/b2c3d4e5…200 "signedFileB64": "JVBERi0xLjcK…"
  1. Þú sendir skjalið

    Kerfið þitt sendir skjalið og kennitölu undirritandans. esigna biður Auðkenni um undirritunina og svarar með pollingId.

    POST /api/v1/signing
    Authorization: Bearer eyJhbGciOi…
    
    {
      "file": {
        "type": "Pdf",
        "name": "samningur.pdf",
        "contentB64": "JVBERi0xLjcK…"
      },
      "signer": {
        "kennitala": "0101902389",
        "signingMethod": "AudkenniApp",
        "reason": "Undirritun"
      },
      "signatureImage": {
        "alignment": "BottomLeft",
        "positioning": "Auto"
      }
    }
  2. Undirritandinn staðfestir

    Beiðnin birtist í Auðkennisappinu eða í símanum. Kerfið þitt spyr um stöðuna með reglulegu millibili og sýnir öryggiskóðann úr svarinu, svo undirritandinn sjái að kóðarnir eru eins.

    GET /api/v1/signing/{pollingId}
    Authorization: Bearer eyJhbGciOi…
    
    400 Bad Request
    {
      "error": "authorization_pending",
      "errorCode": "AuthorizationPending",
      "verificationCode": "1234"
    }
  3. Þú færð skjalið undirritað

    Þegar undirritandinn hefur staðfest skilar næsta fyrirspurn undirritaða skjalinu. Í PDF-skjali er stimpillinn kominn á síðuna.

    GET /api/v1/signing/{pollingId}
    Authorization: Bearer eyJhbGciOi…
    
    200 OK
    {
      "signedFileB64": "JVBERi0xLjcK…"
    }

Það sem esigna sér um

Auðkenni
esigna sér um samskiptin við Auðkenni. Undirritandinn staðfestir í Auðkennisappinu eða með rafrænum skilríkjum á SIM-korti.
Öryggiskóðinn
Svarið skilar fjögurra stafa kóða sem þú sýnir undirritandanum, svo hann sjái að hann staðfestir rétta beiðni.
Stimpillinn
esigna setur stimpilinn á fyrsta lausa staðinn á síðunni og forðast texta og aðrar undirskriftir. Þú getur líka valið staðinn sjálfur eða sent eigin mynd.
Langtímagildi
Sjálfgefið fylgja undirskriftinni gögnin sem þarf til að sannreyna hana síðar (LT). Fyrir langtímavörslu má velja LTA, sem bætir tímastimpli á þau gögn.
Fleiri en einn undirritandi
Þegar fleiri skrifa undir sama skjalið hver á eftir öðrum getur esigna passað að aðeins ein undirritun sé í gangi í einu, svo engin ógildi aðra.

Prófunarumhverfi

sandbox-api.esigna.is

Sama API og í raunumhverfinu, en undirritað er með prófunarnotendum í stað raunverulegra rafrænna skilríkja. Þú færð sérstakt client ID og secret fyrir það frá okkur.

Þú stofnar prófunarnotendurna sjálfur og velur hvort þeir samþykkja eða hafna, strax eða eftir stutta bið. Þannig prófar þú öll svörin sem kerfið þitt þarf að ráða við.

Sækja um prófunaraðgang

Verð

Sama verð og í vefnum. Fjöldi undirskrifta í mánuðinum ræður verðinu og það gildir um allar undirskriftir mánaðarins.

1–10 undirskriftir á mánuði
300 kr.
11–25 undirskriftir á mánuði
215 kr.
26–50 undirskriftir á mánuði
200 kr.
51+ undirskriftir á mánuði
180 kr.

Gjöld Auðkennis eru innifalin og fyrstu 3 undirskriftirnar eru fríar. Verð án virðisaukaskatts.

Nánar um verð

Spurningar og svör

Hvað þarf til að tengjast?
Client ID og secret frá okkur. Með þeim sækir kerfið þitt aðgangslykil með heimildinni api/signatures og sendir hann með hverri fyrirspurn.
Hvernig fæ ég aðgang?
Sendu okkur póst á esigna@esigna.is og við sendum þér client ID og secret fyrir prófunarumhverfið.
Hvaða skjöl er hægt að undirrita?
PDF- og XML-skjöl. Stimpill er aðeins settur á PDF-skjöl.
Þarf undirritandinn aðgang að esigna?
Nei. Hann staðfestir með rafrænum skilríkjum frá Auðkenni, í Auðkennisappinu eða á SIM-korti í símanum.
Geta fleiri skrifað undir sama skjalið?
Já, hver á eftir öðrum. Þú sendir skjalið sem kom til baka í næstu undirritun og hver stimpill fer á næsta lausa stað.
Hvar er skjölunin?
Leiðbeiningar skref fyrir skref eru á docs.esigna.is og tilvísun í öll köll á api.esigna.is.

Byrjaðu í prófunarumhverfinu

Sendu okkur póst og við sendum þér client ID og secret fyrir sandbox-api.esigna.is.