Beint í efni

Áreiðanleika­kannanir með rafrænni undirskrift

Viðskiptavinurinn fær áreiðanleikakönnunina (KYC) í tölvupósti, svarar og undirritar svörin með rafrænum skilríkjum. Síðan er hann skimaður og þú færð áhættumat til að byggja ákvörðunina á.

Innskráning með rafrænum skilríkjum stofnar aðganginn

690 kr. fyrir einstakling og 1.390 kr. fyrir fyrirtæki
Aðeins greitt fyrir kannanir sem er lokið

[e]signa

Áreiðanleikakönnun bíður þín

Halló Jón,

Dæmi ehf. hefur sent þér áreiðanleikakönnunina "Áreiðanleikakönnun – Einstaklingur – 21.10.2026" til útfyllingar. Vinsamlegast smelltu á hnappinn hér að neðan til að opna og svara henni.

Tölvupósturinn sem viðskiptavinurinn fær. Nöfnin eru dæmi.

Svona svarar viðskiptavinurinn

  1. 1

    Svarar spurningunum

    Hann skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og svarar. Undirspurningar birtast eftir svörum.

  2. 2

    Undirritar svörin

    Svörin fara í yfirlýsingu sem hann undirritar með rafrænum skilríkjum og staðfestir öryggiskóðann.

  3. 3

    Könnun lokið

    Hann getur sótt undirritaða yfirlýsingu og þú færð tölvupóst um að könnuninni sé lokið.

  1. 3

    Könnun lokið

    Hann getur sótt undirritaða yfirlýsingu og þú færð tölvupóst um að könnuninni sé lokið.

Þú færð niðurstöðuna

Þegar viðskiptavinurinn hefur undirritað er hann skimaður sjálfkrafa. Áhættumatið byggir á skimuninni og svörunum, og þú skráir ákvörðun með rökstuðningi.

Jón Jónsson

Kt. 010190-2389 · Einstaklingur

Dæmi

Heildaráhættumat Lágt · 12
Þvinganir
Ekkert fannst á þvingunarlistum
PEP tengingar
Engin PEP tenging fannst
Neikvæð fjölmiðlaumfjöllun
Engin neikvæð umfjöllun fannst
Dómsmál
Engin dómsmál fundust
Svör úr spurningalista
7 af 7 svarað

Ákvörðun

Samþykkt

Byggt á: Lágt · 12, skráð 21.10.2026

Niðurstaðan sem þú færð fyrir sama viðskiptavin. Nöfnin eru dæmi.

Það sem er kannað

Þvingunarlistar
Leitað er á alþjóðlegum þvingunarlistum og listum yfir aðila sem tengjast fjármálaglæpum.
Stjórnmálaleg tengsl
Hvort einstaklingur er í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla (PEP) eða tengdur slíkum aðila. Flett er upp eftir kennitölu.
Neikvæð fjölmiðlaumfjöllun
Gervigreind leitar í íslenskum og erlendum fjölmiðlum og tekur niðurstöðuna saman á íslensku, með tenglum á greinarnar. Samantektin er til stuðnings en ákvörðunin er þín.
Dómsmál
Birtir dómar Hæstaréttar, Landsréttar og héraðsdómstóla þar sem nafn viðkomandi kemur fyrir.
Fyrirtæki
Í könnun fyrir fyrirtæki eru stjórn og raunverulegir eigendur sótt til RSK og skimuð með fyrirtækinu sjálfu, án aukagjalds.
Spurningalistinn
Staðlaður spurningalisti fylgir. Þú getur breytt honum eða búið til þinn eigin með texta, já/nei eða valmöguleikum, undirspurningum og áhættuskori fyrir hvert svar.
Áhættumat
Lágt, miðlungs, hátt eða mjög hátt, með ástæðum þegar matið hækkar. Stjórnandi aðgangsins stillir vægi og mörk.
Ákvörðun
Þú skráir ákvörðun með rökstuðningi: samþykkt, aukin áreiðanleikakönnun eða hafnað, og getur sótt undirritaða yfirlýsingu viðskiptavinarins.

Verð

Greitt er fyrir hverja könnun sem er lokið og undirskrift viðskiptavinarins er innifalin. Engin áskrift og engin skuldbinding.

Ekkert er greitt fyrir kannanir sem ekki er svarað. Verð án vsk.

Einstaklingur 690 kr. á könnun
Fyrirtæki 1.390 kr. á könnun

Spurningar og svör

Hvað þarf viðskiptavinurinn?
Netfang og íslensk rafræn skilríki. Hann þarf ekki að stofna aðgang.
Geta erlendir aðilar svarað?
Ekki enn. Viðtakendur skrá sig inn og undirrita með íslenskum rafrænum skilríkjum.
Hvað telst sem ein könnun?
Hver viðtakandi sem lýkur könnun er ein könnun. Ef þrír svara könnun fyrir sama fyrirtækið eru það þrjár kannanir.
Þarf greiðsluleið?
Já. Til að senda áreiðanleikakannanir þarf greiðsluleið í aðganginum strax frá fyrstu könnun. Uppgjör er einu sinni í mánuði.

Sendu fyrstu áreiðanleikakönnunina

Engin áskrift og engin skuldbinding.

Stofna aðgang

Innskráning með rafrænum skilríkjum stofnar aðganginn