Verð á rafrænum undirskriftum
Engin áskrift og engin skuldbinding. Þú greiðir aðeins fyrir notkun og verð á undirskrift lækkar eftir því sem þú notar meira.
Verð
Verðskrá undirskrifta
Verð án vsk.
miðað við 5 undirskriftir á mánuði – samtals 1.500 kr. á mánuði
Fjöldi undirskrifta í mánuðinum ræður verðinu og það gildir um allar undirskriftir mánaðarins.
Engin skuldbinding – borgar bara fyrir hverja undirskrift
Fyrirtækjaaðgangur með ótakmörkuðum notendum
Innifalið í verðinu eru gjöld Auðkennis (opnast í nýjum flipa)
Innskráning með rafrænum skilríkjum stofnar aðganginn
Stærri fyrirtæki
Við gerum verðtilboð, veitum ráðgjöf og smíðum sérlausnir, meðal annars tengingar í gegnum API.
Senda fyrirspurnesigna@esigna.is
Áreiðanleikakannanir
Viðtakandi svarar spurningalista og undirritar svörin með rafrænum skilríkjum. Greitt er fyrir hverja könnun sem er lokið og undirskriftin er innifalin í verðinu.
Ekkert er greitt fyrir kannanir sem ekki er svarað. Fríu undirskriftirnar og afsláttur eftir fjölda gilda ekki um kannanir. Verð án vsk.
Nánar um áreiðanleikakannanirSpurningar og svör
- Er mánaðargjald eða binditími?
- Nei. Það er engin áskrift og engin skuldbinding. Þú greiðir aðeins fyrir undirskriftir og áreiðanleikakannanir sem þú notar.
- Hvernig reiknast verðið?
- Fjöldi undirskrifta í mánuðinum ræður verðinu og það gildir um allar undirskriftir mánaðarins. Með 10 undirskriftum kostar hver 300 kr., en með 11 kostar hver 215 kr.
- Hvað telst sem ein undirskrift?
- Hver viðtakandi sem skrifar undir skjal er ein undirskrift. Ef þrír skrifa undir sama skjalið eru það þrjár undirskriftir. Þeir sem fá skjalið aðeins til áhorfs, eða hafna því, teljast ekki með.
- Hvað telst sem ein áreiðanleikakönnun?
- Hver viðtakandi sem lýkur könnun er ein könnun. Ef þrír svara könnun fyrir sama fyrirtækið eru það þrjár kannanir.
- Eru fyrstu undirskriftirnar fríar?
- Já, fyrstu 3 undirskriftirnar eru fríar. Það gildir einu sinni fyrir hvern aðgang, ekki í hverjum mánuði.
- Eru gjöld Auðkennis innifalin?
- Já. Gjöld Auðkennis fyrir undirritun með rafrænum skilríkjum eru innifalin í verðinu.
- Hvernig er greitt?
- Notkun mánaðarins er gerð upp einu sinni í mánuði. Þegar fríu undirskriftirnar eru búnar skráir þú greiðsluleið í aðganginum til að senda fleiri skjöl. Til að senda áreiðanleikakannanir þarf greiðsluleið strax frá fyrstu könnun.
- Er virðisaukaskattur innifalinn?
- Nei, verðin eru án virðisaukaskatts.
- Þurfa viðtakendur aðgang?
- Nei. Viðtakendur þurfa ekki að stofna aðgang. Þeir skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og skrifa undir.
- Geta fleiri í fyrirtækinu notað aðganginn?
- Já. Fyrirtæki og stofnanir fá sérstakan aðgang með ótakmörkuðum notendum.
Byrjaðu með 3 fríum undirskriftum
Engin áskrift og engin skuldbinding.
Stofna aðgangInnskráning með rafrænum skilríkjum stofnar aðganginn