Svona virkar rafræn undirritun
Rafræn undirritun skjala fer þannig fram að þú sendir PDF-skjal, viðtakendur skrifa undir með rafrænum skilríkjum og undirskriftin er felld inn í skjalið. Hér er ferlið skref fyrir skref.
Ferlið
Það sem þarf
Til að undirrita rafrænt þarf rafræn skilríki frá Auðkenni, annaðhvort í farsíma eða í Auðkennisappinu. Það á við um alla sem koma að undirrituninni.
- Sá sem sendir skjalið stofnar aðgang hjá esigna með því að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
- Viðtakendur þurfa ekki að stofna aðgang. Þeir fá tölvupóst með hlekk á skjalið.
- Skjalið þarf að vera PDF-skjal, allt að 25 MB og ekki varið með lykilorði.
Þú sendir skjalið
- Hleður upp PDF-skjalinu.
- Bætir við viðtakendum með nafni og netfangi. Ef þú gefur líka upp kennitölu getur aðeins sá einstaklingur skrifað undir fyrir viðkomandi viðtakanda.
- Velur hvar undirskriftirnar birtast: í horni á síðu í skjalinu eða á sérstakri undirritunarsíðu aftast.
- Sendir. Allir viðtakendur fá tölvupóst á sama tíma og geta skrifað undir í hvaða röð sem er.
Viðtakandi getur líka fengið skjalið aðeins til áhorfs. Hann skrifar þá ekki undir en fær að vita þegar því er lokið.
Viðtakandinn skrifar undir
- Hann opnar hlekkinn í tölvupóstinum. Hlekkurinn gildir í 7 daga og þú getur sent hann aftur ef hann rennur út.
- Hann les skjalið og skráir sig inn með rafrænum skilríkjum.
- Öryggiskóði birtist á skjánum og sami kóði í símanum. Ef kóðarnir eru eins staðfestir hann undirritunina í símanum og undirskriftin fer á skjalið.
Viðtakandi getur líka hafnað skjalinu og gefið ástæðu. Þá færð þú tölvupóst um það.
Þegar allir hafa skrifað undir
Allir sem koma að skjalinu fá tölvupóst um að því sé lokið, líka þú. Undirritaða skjalið er ekki sent sem viðhengi heldur sótt í esigna eftir innskráningu með rafrænum skilríkjum.
Hvað er á skjalinu
Hver undirskrift fær stimpil á skjalið með nafni og kennitölu úr rafrænum skilríkjum, tíma undirritunar og ástæðu. Stimpillinn sýnir undirskriftina, en undirskriftin sjálf er rafræn og felld inn í PDF-skjalið. Ef skjalinu er breytt eftir undirritun sést það.
Geymsla
Skjölin eru geymd í 2 ár frá því undirritunarferlið er stofnað og síðan eytt sjálfkrafa. Sæktu afrit af því sem þú vilt eiga lengur.
Lagagrundvöllur
Undirskriftirnar byggja á lögum nr. 55/2019 og eIDAS-reglugerðinni, sem gildir um alla Evrópu.
Spurningar um rafræna undirritun? Sendu okkur línu á esigna@esigna.is.
Verð á rafrænum undirskriftumByrjaðu með 3 fríum undirskriftum
Engin áskrift og engin skuldbinding.
Stofna aðgangInnskráning með rafrænum skilríkjum stofnar aðganginn